

Leikskólakennari
Leikskólinn Álfaborg auglýsir eftir leikskólakennara til starfa í 100% stöðu frá og með apríl 2025. Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af skólastefnu Sveitarfélagsins Bláskógabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla sem og öðrum lögum er við eiga.
Leikskólinn Álfaborg starfar í anda Reggio Emilia og er staðsettur í Reykholti, Biskupstungum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags leikskólakennara en tímabundin viðbótarlaun greiðist vegna átaksverkefnis til að fjölga leikskólakennurum. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.
· Þátttaka í uppeldi og menntun leikskólabarna.
· Að fylgjast með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins.
· Þátttaka í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og faglegum verkefnum.
· Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
· Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum.
· Að gæta að öryggi leikskólabarna, menntun, þroska þeirra og líðan.
· Leyfisbréf kennara, sbr. lög nr. 95/2019, III kafli 9. grein og IV kafli 20. grein.
· Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
· Færni í mannlegum samskiptum.
· Hæfni og áhugi í starfi með börnum.
· Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
· Færni í ræðu og riti.
· Góð íslenskukunnátta æskileg.
· Tímabundin viðbótarlaun
· Yfirvinnugreiðslur (6 klst.)
· Ívilnun vegna aksturs
· Fatastyrkur
· Frítt fæði
· Stytting vinnuvikunnar
· Sund/líkamsræktarkort Bláskógabyggðar
· Skapandi starfsumhverfi












