Móttaka viðskiptavina - Byko Kjalarvogur
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi í móttöku viðskiptavina í vöruhúsið okkar í Kjalarvogi.
Vöruhúsið í Kjalarvogi hýsir grófvöru BYKO s.s. timbur, plötur og kambstál.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er frá 8-17 alla virka daga.
Við leitum að starfsmanni með:
- Ríka þjónustulund
- Skiplagshæfni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta, nauðsynleg
- Pólsku kunnátta, kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Starfsreynsla í vöruhúsi, kostur
- Bílpróf, skilyrði
- Lyftarapróf, kostur
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Móttaka viðskiptavina við þjónustuborð
- Samskipti við sölumenn
- Aðstoða verkstjóra tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar en unnið er úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Ægir Baldursson ([email protected]) rekstrarsjóri.