Mörk hjúkrunarheimili
Mörk hjúkrunarheimili
Mörk hjúkrunarheimili

Mörk - Starfsmaður í iðju- og félagsstarf

Mörk hjúkrunarheimili leitar að duglegum og hressum starfsmanni í iðju- og félagsstarf heimilisins.

Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og mikil áhersla er lögð á góða teymisvinnu. Um er að ræða dagvinnu og starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Starfið er tilvalið fyrir nema í iðjuþjálfun, tómstundafræði og félagsvísindum.

Hæfniskröfur:

  • Góð íslenskukunnátta
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni

Fríðindi í starfi:

  • Aðgangur að heilsustyrk
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Öflugt starfsmannafélag

Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttafélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Á Grundarheimilunum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni. Þar vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Fanney Björg Karlsdóttir yfiriðjuþjálfi, [email protected]

Mannauðsdeild Grundarheimilanna, [email protected]

Við hlökkum til að heyra frá þér!

Auglýsing birt19. ágúst 2025
Umsóknarfrestur29. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 66, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar