

Sérfræðingur í persónutjónum
Á spennandi tímum leitar Vörður að öflugum liðsauka í tjónaþjónustu. Helstu verkefni snúa að fjölbreyttri þjónustu við viðskiptavini í tengslum við persónutjón, uppgjör tjóna og umsýslu þeirra. Ef þú brennur fyrir því að veita góða þjónustu, átt gott með að vinna í teymi og hefur áhuga á fjölbreyttum og krefjandi verkefnum þá gæti þetta verið starf fyrir þig. Við hvetjum öll til að sækja um.
-
Almenn vinnsla persónutjóna
-
Samskipti, þjónusta og stuðningur við viðskiptavini, samstarfsaðila og aðra hagsmunaaðila
-
Samskipti við erlenda þjónustuaðila
-
Skráning og gagnaöflun
-
Úrvinnsla gagna, mat á bótaskyldu og uppgjör tjóna
-
Samstarf og samvinna við önnur teymi hjá Verði
-
Önnur tilfallandi verkefni, svo sem þátttaka í umbótaverkefnum
-
Frumkvæði, þjónustulund og fagmennska
-
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
-
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að greina tækifæri til umbóta og skilvirkni
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
-
Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi












