Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Frístundaleiðbeinandi í Barnaskóla Kársness

Barnaskóli Kársness óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda í frístundina Vinahól.

Barnaskóli Kársness er nýr sameinaður grunn- og leikskóli í vesturbæ Kópavogs. Í grunnskólahluta skólans eru nemendur í 1. til 4. bekk og um 50 starfsmenn.

Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf með börnum í 1.-4. bekk að skóladegi loknum. Frístundin Vinahóll starfar í anda stefnu Kópavogsbæjar um málefni frístundastarfs og klúbbastarfs en þar er lögð áhersla á að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu. Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja. Vinnutími getur hentað fólki sem er í námi.

Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Vinnutími er 13:00 - 16:00 eða 16:30, 4 - 5 daga í viku.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leiðbeina börnum í leik og starf

Stuðlar að jákvæðum samskiptum

Gengur í tilfallandi verkefni innan frístundarheimilis

Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla og áhugi á starfi með börnum æskileg

Framhaldskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg

Góð íslenskukunnátta skilyrði

Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum

Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi

Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Kópavogsbæjar

Fríðindi í starfi

Frítt í sundlagar Kópavogs og stytting vinnuvikunar

Auglýsing birt19. ágúst 2025
Umsóknarfrestur2. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar