
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Matráður við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað
Eyrarvellir er átta deilda leikskóli með sex starfrækar deildir og dvelja þar um 100 börn og starfa 32 starfsmenn. Leikskólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Eyrarvellir vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Leikskólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast alla matagerð í leikskólanum með áherslu á fjölbreyttan og næringaríkan mat.
- Þjálfar og útdeilir verkefnum til aðstoðarmatráðs í samráði við leikskólastjóra.
- Útbýr sérfæði fyrir þá nemendur og starfsmenn sem þess þurfa af heilsufarsástæðum.
- Ber ábyrgð á öllum innkaupum fyrir eldhús og samskipum við birgja.
- Fylgist með borðbúnaði og öðrum lausamunum í eldhúsi og sér um endurnýjun og innkaup þegar þörf er á í samræmi við leikskólastjóra.
- Annast daglega ræstingu eldhúss, kaffistofu og í þvottahúsi, hefur umsjón með því að tæki og búnaður í eldhúsi starfi eðlilega.
- Ber ábyrgð á daglegum þrifum og mælingum á hitastigi fyrir HRAUST.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Menntun í matreiðslu er æskileg
- Góð reynsla og atvinnumeðmæli af matreiðslu er skilyrði.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt12. maí 2025
Umsóknarfrestur20. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Neskaupstaður
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (12)

Skólaliði við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Tónlistarkennarar óskast
Fjarðabyggð

Starfsmaður í þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð

Deildarstjóri, Leikskólinn Kæribær, Fáskrúðsfirði
Fjarðabyggð

Leikskólakennari við Leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði
Fjarðabyggð

Leikskólakennari við Leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Fjarðabyggð

Deildarstjóri Leikskólinn Lyngholt, Reyðarfirði
Fjarðabyggð

Kennari við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð

Kennari fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál, ÍSAT
Fjarðabyggð

Umsjónarkennari við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð

Sérkennari við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Sambærileg störf (12)

Leikskólinn Sunnuás - mötuneyti
Skólamatur

Line Cook - Gistihúsið Egilsstaðir Lake Hotel
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstaðir

Starfsfólk í reykhús
Fiskur ehf

Matreiðslumaður / Chef
Stracta Hótel

Matartæknir óskast til starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurland
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Ás - starfsmaður í eldhúsi
Ás dvalar og hjúkrunarheimili

Súkkulaðigerð/Chocolate making Frá 06.00-14.00
Omnom

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Apotek kitchen + bar

Chef | Matreiðslumaður
Hótel Dyrhólaey

Stapaskóli - mötuneyti
Skólamatur

Matreiðslumaður/Aðstoðarmaður í eldhús
Hótel Grímsborgir

Matreiðslumaður - afleysing
Ráðlagður Dagskammtur