Mi búðin
Mi búðin
Mi búðin

Markaðsstjóri

Mi búðin leitar að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi til að sjá um markaðsstarf fyrirtækisins. Um er að ræða nýtt starf þar sem unnið er náið með stjórnendum Mi búðarinnar við að móta stefnu fyrirtækisins í markaðsmálum. Leitað er að starfskrafti sem getur unnið sjálfstætt og komið hlutunum í framkvæmd.

Starfið er fjölbreytt og snýr að heildarútliti Mi búðarinnar, markaðssetningu í vefverslun og verslun, herferðum og efnissköpun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun vörumerkis: Ábyrgð á heildarútliti og ímynd Mi búðarinnar þvert á alla miðla.
  • Móta og keyra markaðsáætlun (markmið, herferðir, tímalínur, forgangsröðun).
  • Skipuleggja og framkvæma herferðir fyrir vefverslun og verslun (t.d. tilboð og nýjar vörur).
  • Greining: Fylgjast með árangri herferða og fínstilla markaðsstarfið jafnt og þétt.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af markaðssetningu eða sambærilegu hlutverki.
  • Geta til að vinna sjálfstætt, hafa frumkvæði og klára verkefni.
  • Skipulagshæfni og geta til að forgangsraða fjölbreyttum verkefnum.
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku.

Kostir en ekki skilyrði:

  • Meta Ads / Google Ads, SEO, póstlistar (t.d. Klaviyo/Mailchimp).
  • Reynsla af WooCommerce / vefverslunum og hagræðingu á söluflæði (CRO).
  • Mynd-/myndbandsefnisvinnsla eða reynsla af efnissköpun.
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Mikil áhrif og sjálfstæði í starfi
  • Blönduð vinna / fjarvinna hluta vikunnar
  • Starfsmannaafsláttur
  • Styrkur til fræðslu og námskeiða
Auglýsing birt12. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Ármúli 21, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AdWordsPathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.CanvaPathCreated with Sketch.Email markaðssetningPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Facebook Business ManagerPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AdsPathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.Google Data StudioPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Leitarvélabestun (SEO)PathCreated with Sketch.MailchimpPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MarkaðsrannsóknirPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Skilgreining markhópaPathCreated with Sketch.Vörumerkjastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar