Alfreð
Alfreð
Alfreð

Ert þú okkar næsti sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu?

Við leitum að öflugum liðsauka í markaðsteymið okkar í tímabundið starf til 1. febrúar 2027. Ef þú elskar stafræna miðla, hefur auga fyrir tækifærum og vilt vinna með tveimur af flottustu vörumerkjum landsins, Alfreð og Giggó, þá viljum við heyra í þér!

Mikilvægt að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinna samfélagsmiðlum: Þú hjálpar okkur að koma kynningarefni okkar á framfæri og vera meira áberandi á réttum stöðum á réttum tíma.
  • Stýra herferðum: Þú sérð um að halda utan um og fínstilla birtingar á auglýsingum í Meta og Google.

  • Plana birtingar: Þú býrð til birtingaráætlanir fyrir samfélagsmiðla sem ná til rétta hópsins.

  • Mæla árangurinn: Þú greinir gögnin (Meta og Analytics), gerir árangursmælingar og finnur út hvað virkar best.

  • Vera hluti af teyminu: Taka þátt í öðrum spennandi verkefnum sem koma upp í markaðsdeildinni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þú ert með mjög góða þekkingu á stafrænni markaðssetningu.
  • Þú ert með 3+ ára reynslu af Meta Ads Manager (skilyrði).

  • Þú kannt vel á Google Ads (skilyrði).

  • Þú skrifar flotta íslensku og góða ensku.

  • Þú getur unnið sjálfstætt, fylgt hlutunum eftir og óttast ekki að koma með nýjar hugmyndir.

Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akralind 8, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinu
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar