Rangárþing Ytra
Rangárþing Ytra

MARKAÐS- OG KYNNINGARFULLTRÚI

Rangárþing ytra óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf markaðs- og kynningarfulltrúa. Um fjölbreytt og margþætt framtíðarstarf er að ræða sem krefst góðrar færni á ýmsum sviðum, m.a. í tengslum við umsjón viðburða, kynningarmál og ritstjórn heimasíðu sveitarfélagsins.
Starfshlutfall er 100%.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á og umsjón með markaðs-, upplýsinga- og kynningarmálum sveitarfélagsins
  • Verkefnastjórnun og umsjón með framkvæmd viðburða, s.s. Töðugjöld, 17. júní á Hellu og árshátíð sveitarfélagsins
  • Umsjón með vef- og samfélagsmiðlum sveitarfélagsins
  • Þátttaka í markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd og öðrum nefndum eftir atvikum
  • Samskipti við ýmsa hagsmunaaðila
  • Önnur tilfallandi sérverkefni, s.s. á sviði ferðamála, stefnumótunar og skýrslugerðar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Menntun og/eða reynsla á sviði viðburða- og verkefnastjórnunar er kostur
  • Þekking á svæðinu og nærsamfélaginu er skilyrði
  • Reynsla af umsjón vefsvæða er skilyrði
  • Þekking eða reynsla af framsetningu kynningarefnis er kostur
  • Þekking og reynsla af sjórnsýslu sveitarfélaga er kostur
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt25. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsvegur 1, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar