
Hornsteinn ehf
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. á og rekur tvö dótturfélög, BM Vallá og Björgun-Sement sem eiga sér rótgróna sögu á Íslandi. Þau byggja starfsemi sína á sterkri gæða- og þjónustuvitund enda mynda þau saman hornstein í íslenskum byggingariðnaði þar sem miklar kröfur eru gerðar til gæða og endingar íslenskra mannvirkja.
Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og er markvisst unnið að lausnum sem hafa jákvæðari umhverfisáhrif.
Hjá fyrirtækjunum starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks að því að gera mannvirkjagerð á Íslandi umhverfisvænni.

Sumarstarf: Skrifstofu- og þjónustufulltrúi
Fjölbreytt og skemmtilegt starf á fjármálasviði Hornsteins.
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. óskar eftir að ráða einstakling í tímabundið starf á fjármálasvið félagsins. Hornsteinn er móðurfélag BM Vallá og Björgunar-Sements og sér um reikningagerð, innheimtu, fjárhagsbókhald, greiðslur reikninga, tölvuumsjón og gæðamál fyrir dótturfélögin.
Um er að ræða 100% starf í sumarafleysingum. Skilgreindur vinnutími er frá 8-16.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skönnun reikninga og bókhaldsverkefni
- Umsjón með fundaherbergi og undirbúningi
- Móttaka gesta
- Innkaup á skrifstofu-og rekstrarvörum
- Umsjón með kaffistofu
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund, samskiptafærni, lipurð og jákvætt viðmót
- Haldgóð menntun sem nýtist í starfi
- Almenn og góð tölvukunnátta er skilyrði
- Reynsla af bókhaldsstörfum er kostur
- Samviskusemi og snyrtimennska
- Sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
- Mjög góð íslenskukunnátta og færni í ensku
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamviskusemi
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Innkaupastjóri
Álfasaga ehf

Tesla Parts Advisor - Akureyri
Tesla

Markaðs- og viðburðastjóri
BAKO VERSLUNARTÆKNI ehf

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf
ATC

Þjónustu- og verkefnastjóri
Markend ehf.

Birtingastjóri á stafrænum miðlum
MARS MEDIA

Upplýsingafulltrúi
Sameyki

Innkaupafulltrúi
Steypustöðin

Strategic Purchaser
JBT Marel

Verkefnastjóri fræðslu og miðlunar
Sláturhúsið menningarmiðstöð