
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Innkaupafulltrúi
Steypustöðin leitar að öflugum og ábyrgum aðila í starf Innkaupafulltrúa með ábyrgð á lager í Borgarnesi.
Megináhersla starfsins er á daglega umsjón og stjórnun lagerstarfsemi í Borgarnesi. Viðkomandi ber ábyrgð á birgðahaldi, móttöku og skráningu vara, eftirliti með lagerstöðu og að tryggja rétt magn. Einnig felur starfið í sér skipulagningu og framkvæmd innkaupa, samskipti við birgja og eftirfylgni pantana.
Viðkomandi þarf að vera skipulagður, nákvæmur og sjálfstæður í vinnubrögðum, búa yfir góðri samskiptahæfni og geta brugðist hratt við breyttum aðstæðum.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með lager
- Stjórnun innkaupa og lagerstarfsemi í Borgarnesi
- Móttaka og afhending vara
- Skráning vara í birgðakerfi
- Áfylling á millilager
- Innkaup á vörum í samstarfi við aðrar deildir
- Þrif og viðhald á lageraðstöðu
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í lagerstörfum og innkaupum
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku og enskukunnátta
- Pólskukunnátta er kostur
- Þekking á gæðamálum og öryggismálum
- Góð þjónustulund og jákvætt viðhorf
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi
- Ökuréttindi
- Frumkvæði í starfi
- Heiðarleiki og metnaður í starfi
- Stundvísi, vandvirkni og fagleg vinnubrögð
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Námskeið og fræðsla
- Hádegismatur
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur21. apríl 2026
Tungumálahæfni
PólskaValkvætt
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Engjaás 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
AðlögunarhæfniFagmennskaHreint sakavottorðMannleg samskiptiÖkuréttindiSkipulagSnyrtimennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Vöruhús / lager
Icetransport

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - 50% starfshlutfall
DHL Express Iceland ehf

Innkaupastjóri/Purchasing Manager
Nicopods ehf

Starfsmaður í vöruhús
Raftækjalagerinn

Dreifingarmiðstöð - lagerstarfsmaður
Vínbúðin

Þjónustu og sölufulltrúi óskast til Johan Rönning
Johan Rönning

Partýfulltrúi - Fullt starf - Helgarstarf
Rent-A-Party

Starfsmaður óskast á lager og í útkeyrslu hjá Inter ehf.
Inter ehf

Þjónustufulltrúi - vöruhús og verkstæði
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Bílstjóri og aðstoðarmaður í vöruhúsi – Fjölbreytt og líflegt starf
Egill Árnason ehf

Business Central ráðgjafi
Wise lausnir ehf.