Bera hf.
Bera hf.

Starfsmaður í gæðadeild vöruhúss

Við leitum að öflugum og samviskusömum einstaklingi til starfa í gæðadeild vöruhúss. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér gæða- og birgðaeftirlit, meðhöndlun skilavara og frávika ásamt þátttöku í umbótum og þróun verkferla.Starfið felur í sér náið samstarf við starfsfólk vöruhúss, söludeild, þjónustuver og aðrar deildir fyrirtækisins með það að markmiði að tryggja gæði, rétta vörumeðhöndlun og góða þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með talningum og birgðaeftirliti.
  • Gæðaeftirlit með vörum, þar á meðal vöktun á dagsetningum, ástandi vara og frágangi tjónavöru.
  • Móttaka, yfirferð og uppgjör skilavara.
  • Samskipti við þjónustuver vegna skilavara eftir því sem við á.
  • Skráning og eftirfylgni frávika ásamt þátttöku í umbótum vegna þeirra.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun verkferla.
  • Eftirlit með því að verklagi og gæða- og öryggiskröfum sé fylgt.
  • Þátttaka í öðru gæðastarfi innan vöruhúss og fyrirtækisins eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vöruhúsastörfum, gæðaeftirliti eða sambærilegum störfum er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Nákvæmni, talnaglöggni og skipulögð vinnubrögð.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund.
  • Áhugi á gæðamálum og stöðugum umbótum.
Auglýsing birt1. desember 2026
Umsóknarfrestur31. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 6, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar