Íslyft / Steinbock þjónustan ehf
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Nákvæmur og harðduglegur lagerstarfsmaður óskast!

Óskum eftir að ráða harðduglegan og nákvæman einstakling í lagerteymið okkar á Kársnesi í Kópavogi. Þetta er lagerstarf fyrir þann sem hefur gaman af kerfum: þú vinnur daglega í K8 vöruhúsakerfi og berð ábyrgð á að gögnin séu rétt.

Starfið snýst um að halda lagernum í toppstandi: taka á móti vörum, skrá þær rétt, telja, taka til pantanir og sjá til þess að birgðir í kerfinu stemmi við það sem er til. Mest er unnið með varahluti, en viðkomandi kemur einnig að móttöku og umsýslu á tækjum og búnaði.

Við erum að herða tökin á birgðaskráningu og talningum og viljum fá inn einstakling sem tekur virkan þátt í því.

Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem

  • Lætur verkin tala og klárar það sem byrjað er á
  • Vill hafa hlutina rétta, bæði í hillunni og í kerfinu
  • Tileinkar sér tölvukerfi hratt og vinnur skipulega í þeim
  • Spyr: „Hvernig má gera þetta einfaldara eða sjálfvirkara?“
  • Sér hvað þarf að laga og gengur í það

Það sem við bjóðum

  • Framtíðarstarf í fullu starfi hjá traustu fyrirtæki með yfir 50 ára sögu
  • Tækifæri til að læra á kerfin okkar og vaxa í starfi
  • Við komum þér vel inn í K8 vöruhúsakerfið
  • Fjölbreytt verkefni og raunverulega ábyrgð á því að lagerinn sé í lagi
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vörumóttaka: móttaka sendinga, yfirferð á móti pöntunum og fylgiskjölum og skráning í K8 vöruhúsakerfi
  • Frágangur vöru á rétta staðsetningu og merkingar
  • Tiltekt pantana og varahluta
  • Reglulegar talningar, greining frávika og leiðréttingar
  • Eftirfylgni með því að birgðastaða í kerfi sé rétt
  • Aðstoð við móttöku og umsýslu á tækjum og búnaði
  • Skipulag, umgengni og snyrtimennska á lager
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af lagerstörfum er kostur, en áhugi á kerfum og vilji til að læra vega þyngra
  • Góð tölvufærni og reynsla af vöruhúsa- eða birgðakerfum
  • Reynsla af K8 eða sambærilegu vöruhúsakerfi er mikill kostur
  • Mjög gott vinnusiðferði, stundvísi og áreiðanleiki
  • Reynsla af DK og lyftararéttindi eru kostur
  • Líkamleg geta til lagerstarfa
  • Góð íslenskukunnátta, enskukunnátta er kostur
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins
  • Starfsmannafélag
  • Golfhermir
  • Píluaðstaða
  • Borðtennis og Pool-borð
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur13. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Vesturvör 32A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.BirgðahaldPathCreated with Sketch.LyftaraprófPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar