John Lindsay hf.
Markaðsfulltrúi í hlutastarf
John Lindsay hf, heildsala, leitar að drífandi og skapandi markaðsfulltrúa í hlutastarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og innleiðing markaðsáætlana fyrir fjölbreytt vörumerki.
- Umsjón með samfélagsmiðlum og efnissköpun.
- Birtingastjórnun og samskipti við auglýsingadeildir miðla.
- Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd kynningaviðburða.
- Greiningar á árangri markaðsstarfs.
- Umsjón með vefverslun og vörulistum.
- Önnur tilfallandi markaðsverkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af markaðssetningu, samfélagsmiðlum og efnissköpun.
- Þekking og reynsla af stjórnun auglýsingabirtinga (t.d. Meta Business Suite, Google Ads og Púls Media).
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi.
- Skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.
- Mikill kostur að hafa þekkingu á grafískri hönnun og geta búið til efni eftir vörumerkjastöðlum.
- Þekking á Wordpress kostur.
- Geta til að vinna undir álagi og metnaður til að ná árangri.
Fríðindi í starfi
Við bjóðum fjölbreytt og skapandi verkefni, sveigjanlegan vinnutíma og góða vinnuaðstöðu. Markaðsfulltrúi mun starfa í nánu samstarfi við markaðsstjóra fyrirtækisins og taka virkan þátt í að móta og framkvæma markaðsaðgerðir okkar.
Auglýsing birt9. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 23, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AsanaAuglýsingagerðEmail markaðssetningGreinaskrifLeitarvélabestun (SEO)Markaðssetning á netinuSkilgreining markhópaVörumerkjastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)
Sölu og Markaðsstjóri
Öruggt Net ehf.
Marketing specialist / Sérfræðingur í markaðssetningu
Venja
Ert þú grafískur snillingur?
Moss Markaðsstofa
Hönnuður
Xprent- hönnun og merkingar ehf
Markaðsfulltrúi hjá Hörpu
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Þjónusta og samkipti
Kokkarnir Veisluþjónusta
Þjónustufulltrúi
Maul