
Garðheimar
Garðheimar er fjölskyldurekið fyrirtæki með áherslu á allt sem tengist grænum lífsstíl, plöntum, blómum, skreytingum, gjafavöru, gæludýravörum og gæða garðyrkjutækjum og tólum.
Stefna fyrirtækisins er að reka náttúruvænt fyrirtæki þar sem fólk getur eytt tímanum og notið þess andrúmslofts sem skapast innan um fjölskrúðugan gróður, sem og að veita góða þjónustu byggða á þekkingu og reynslu.
Garðheimar eiga rætur til 30. september 1991 þegar hjónin Gísli H. Sigurðsson og Jónína S. Lárusdóttir stofnuðu fyrirtækið Gróðurvörur sem var til húsa á Smiðjuvegi 5.

Markaðsfulltrúi
Garðheimar leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með mikla sköpunargleði til að ganga til liðs við markaðsdeildina okkar. Um er að ræða mjög fjölbreytt starf við markaðssetningu á breiðu vöruúrvali verslunarinnar þar sem mikið af markaðsefni er unnið innanhúss. Mjög spennandi tækifæri á frábærum vinnustað þar sem hæfileikar hvers og eins fá að njóta sín. Um er að ræða 80% starf með sveigjanlegum vinnutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og daglegt utanumhald samfélagsmiðla
- Auglýsingagerð og skipulagning birtinga
- Textaskrif
- Skipulagning viðburða
- Ýmis tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Þekking á stafrænni markaðssetningu
- Góð tök á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Hugmyndaauðgi og gott auga fyrir framsetningu og útstillingum
- Góðir samskiptahæfileikar
- Áhugi á blómum, garðyrkju og gæludýrum mikill kostur
Fríðindi í starfi
- Starfsmannaafsláttur
- Framúrskarandi aðstaða
Auglýsing birt11. febrúar 2026
Umsóknarfrestur21. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Álfabakki 6, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AuglýsingagerðFacebookGreinaskrifÍmyndarsköpunInstagramMarkaðssetning á netinuSamviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Sölu og markaðsmál - hlutastarf
Ráðlagður Dagskammtur

Birtingastjóri stafrænna miðla
Basic Markaðsstofa

Sölufulltrúi/Starfsmaður fyrir heildverslun/verslun fullt starf
Gullskógar

Ert þú okkar næsti sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu?
Alfreð

Sölu- og markaðsfulltrúi í tímabundið starf
Strætó bs.

Sumarstarf í hringiðu nýsköpunar á Íslandi?
KLAK - Icelandic Startups

User Acquisition Specialist
CCP Games

MARKAÐS- OG KYNNINGARFULLTRÚI
Rangárþing Ytra

Sumarstarf: Skrifstofu- og þjónustufulltrúi
Hornsteinn ehf