Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Markaðs- og sölustjóri

Langar þig að stýra markaðs- og sölustarfi leiðandi fræðsluseturs í iðnaði?

Iðan fræðslusetur leitar að metnaðarfullum og framsýnum markaðs- og sölustjóra. Hafir þú brennandi áhuga á að styðja við vöxt í fræðslustarfi og auka vitund um vörumerki og þjónustu með öflugu markaðs- og sölustarfi, gæti þetta verið starf fyrir þig.

Markaðs- og sölustjóri leiðir markaðs- og sölustarf Iðunnar, ber ábyrgð á vef Iðunnar, daglegum markaðsverkefnum og á í miklum samskiptum við starfsfólk Iðunnar þvert á félagið. Markaðs- og sölustjóri heyrir undir framkvæmdastjóra Iðunnar og situr í framkvæmdastjórn félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móta og innleiða markaðsstefnu, sem og markaðs- og söluáætlanir
  • Stýra markaðsaðgerðum
  • Greina markhópa þvert á iðngreinar og laga markaðsaðgerðir að þeim
  • Greina og skrá árangur markaðsaðgerða
  • Hafa umsjón með og sinna beinni sölu
  • Fylgjast náið með þróun í markaðsfræðum og stafrænni tækni
  • Gerð og eftirfylgni með framkvæmda- og rekstraráætlunum vegna markaðs- og sölustarfs
  • Vinna náið með öðrum deildum félagsins
  • Eiga í samskiptum og samvinnu við ytri samstarfsaðila í markaðsmálum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af markaðssetningu og sölumálum
  • Reynsla af stafrænum markaðstækjum og greiningartólum
  • Farsæl stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Þekking á fræðslu og símenntun er kostur
  • Þekking á iðngreinum er kostur
Auglýsing birt24. júní 2025
Umsóknarfrestur3. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar