JYSK
JYSK er hluti af alþjóðlegu verslunarkeðjunni JYSK. Fyrsta verslunin var opnuð á Íslandi árið 1987 af þeim Jákup Jacobsen og Jákupi N. Purkhús og hét þá Rúmfatalagerinn. Í dag eru verslanir JYSK 7 talsins ásamt vefverslun og vöruhúsi. Verslanir eru staðsettar á Smáratorgi, Skeifunni, Granda, Bíldshöfða, Selfossi, Reykjanesbæ og Akureyri.
JYSK hefur verið leiðandi á lágvöruverðsmarkaðnum á Íslandi frá upphafi. JYSK hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða frábært vöruúrval, góða þjónustu ásamt því að vera ávallt með góð tilboð.
Mannauðsráðgjafi - Tímabundið starf
Við leitum að skemmtilegum, jákvæðum og drífandi einstaklingi í mannauðsteymið okkar. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á mannauðsmálum og mikinn metnað til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni, vera lausnamiðaður, hugmyndaríkur og til í áskoranir. Um 100% starf er að ræða.
Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs, með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Ásdís Hannesdóttir mannauðsstjóri - asdis.hannesdottir@lagerinn.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með fræðslumálum
- Ráðningar
- Þátttaka í gerð, endurskoðun og uppfærslu verkferla mannauðssviðs
- Ráðgjöf og úrvinnsla ýmissa mála tengd vinnurétti og framfylgd kjarasamninga
- Stuðningur, ráðgjöf og handleiðsla við stjórnendur
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólanám sem nýtist í starfi
- Reynsla af mannauðsmálum
- Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt hugarfar
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Þekking á Kjarna og MyTimePlan kostur
Auglýsing birt3. september 2024
Umsóknarfrestur24. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)