JYSK
JYSK er hluti af alþjóðlegu verslunarkeðjunni JYSK. Fyrsta verslunin var opnuð á Íslandi árið 1987 af þeim Jákup Jacobsen og Jákupi N. Purkhús og hét þá Rúmfatalagerinn. Í dag eru verslanir JYSK 7 talsins ásamt vefverslun og vöruhúsi. Verslanir eru staðsettar á Smáratorgi, Skeifunni, Granda, Bíldshöfða, Selfossi, Reykjanesbæ og Akureyri.
JYSK hefur verið leiðandi á lágvöruverðsmarkaðnum á Íslandi frá upphafi. JYSK hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða frábært vöruúrval, góða þjónustu ásamt því að vera ávallt með góð tilboð.
Sölufulltrúi hjá vef- og þjónustusviði JYSK
Vef- og þjónustusvið JYSK leitar að metnaðarfullum, þjónustulunduðum og lausnamiðuðum liðsmanni í teymið.
Ef þú ert söludrifinn, hugsar í lausnum og hefur gott tölvulæsi þá hvetjum við þig til að sækja um starfið.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjendur séu 25 ára eða eldri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón með vefverslun JYSK
- Vöruuppsetning og skipulag á vef
- Uppfærsla á upplýsingum og markaðsefni fyrir vef
- Samskipti við viðskiptavini vefverslunar í síma og tölvupós
- Samvinna með markaðsdeild varðandi veftengda markaðssetningu
- Dagleg umsjón með fyrirtækjasviði JYSK (B2B)
- Samskipti, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina í gegnum síma og tölvupóst
- Umsjón með sérpöntunum fyrir viðskiptavini
- Umsjón með markaðsefni og skráningum B2B viðskiptavina JYSK
- Önnur tilfallandi verkefni innan vef- og þjónustusviðs JYSK
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða starfsreynsla tengd vefverslun eða sambærilegu er kostur
- Þekking á birgðakerfum á borð við BC og NAV er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Auglýsing birt6. september 2024
Umsóknarfrestur24. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Húsavík - tímavinna
Vínbúðin
Sölufulltrúi - Lagnaverslun Breidd
Byko
Sölufulltrúi í verkfæra- og festingadeild BYKO Breidd
Byko
Starfsfólk í verslun - Akureyri
ILVA ehf
Sala, innkaup og markaðsmál
Þakefnasala Íslands
Heilsuhúsið - Sala og ráðgjöf
Heilsuhúsið
Sölustarf í verslun - fullt starf
Cintamani
Starfsmaður á þjónustuver óskast
AB Varahlutir
Sala og skipulagning skyndihjálp
Rauði krossinn á Íslandi
Löggiltur fasteignasali
Borg fasteignasala
ERT ÞÚ LÚXUSTÝPA?
Lúxusbíll
Sölumaður í verslun
Rafkaup