Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda
Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda
Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda

Ljósið leitar að sálfræðingi

Viltu þú vinna í öflugum hópi fagaðila Ljóssins?

Ljósið leitar að sálfræðingi til starfa í eitt ár.

Ljósið er skemmtilegur og gefandi vinnustaður sem sérhæfir sig í endurhæfingu fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein ásamt því að veita aðstandendum fræðslu og stuðning.

Starf sálfræðings í Ljósinu er mjög fjölbreytt og felur meðal annars í sér:

• Stuðningsviðtöl bæði við krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra
• Utanumhald og fræðsla á sérhönnuðum námskeiðum / stuðningshópum
• Skýrslugerð í kjölfar viðtala
• Þátttaka í gæðaþróun innan starfseminnar
• Móttaka nýrra þjónustuþega
• Tilfallandi verkefni er snúa að daglegri starfsemi Ljóssins

Mikilvægt er að umsækjandi hafi yfir jákvæðu og vinalegu viðmóti að búa og sé lipur í mannlegum samskiptum.

Húsakynni Ljóssins eru heimilisleg og þar starfar þverfaglegur hópur sem vinnur náið saman en hátt í 40 manns starfa í Ljósinu í breytilegum stöðugildum.

Mikil þróunarvinna á sér stað þar sem miðstöðin er ung og tekur sífelldum breytingum.

Starfshlutfall er samkomulagsatriði en viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september 2025.

Umsóknarfrestur til og með 10. júní en fyrirspurnir um starfið veitir Erna Magnúsdóttir forstöðukona Ljóssins í síma 561-3770 eða 695-6636

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sálfræðiráðgjöf
  • Námskeið
  • Fræðsla
  • Þróunarvinna
  • Skýrslugerð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sálfræðingur
Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur10. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Langholtsvegur 43, 104 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar