Marel
Marel
Marel

Liðsfélagi í suðu

Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við suðu í framleiðslu sem vill taka þátt í að umbreyta því hvernig matvæli eru unnin. Lögð er áhersla á öruggt vinnulag og þátttöku í umbótastarfi.

Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi og fjölbreytt verkefni.


Starfið felur í sér:

  • Smíði úr ryðfríu stáli
  • Samsetningu tækja og búnaðar eftir þörfum
  • Stillingar og prófanir ásamt frágang fyrir flutning eftir þörfum


Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf eða nemi í málmiðngrein
  • Mikill áhugi á rafsuðu (TIG)
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
  • Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun
  • Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
  • Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
  • Jákvæðni, lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
  • Áhugi á umbótastarfi

Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2024. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel.

Auglýsing stofnuð22. mars 2024
Umsóknarfrestur7. apríl 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar