Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.
Spennandi sumarstörf í framleiðslu
Við leitum að metnaðarfullu og ábyrgu fólki í fjölbreytt sumarstörf í ker- og steypuskála og í skautsmiðju. Störfin henta öllum kynjum. Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri og hafi gild ökuréttindi.
Unnið er á þrískiptum 8 tíma vöktum í kerskála og steypuskála (fimm daga vinna/fimm daga frí) og 12 tíma vaktir í skautsmiðju. Starfsfólki bjóðast ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Sumarstarfsfólk fer í markvissa þjálfun í upphafi starfstíma, þar sem höfuðáhersla er lögð á öryggi starfsfólks á vinnustað og þekkingu á vinnuumhverfi og tækjabúnaði. Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- 18 ára lágmarksaldur
- Mikil öryggisvitund og árvekni
- Heiðarleiki og stundvísi
- Góð samskiptahæfni
- Dugnaður og sjálfstæði
- Bílpróf er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu
- Vinnuvélaréttindi
Auglýsing stofnuð3. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Starfsfólk óskast
Sagtækni ehf
Framleiðslustarfsmenn / Concrete factory workers
Einingaverksmiðjan
Fill & Finish Senior Technologist
Alvotech hf
Senior Biotechnologist
Alvotech hf
Fill & Finish Technologist
Alvotech hf
Biotechnologist
Alvotech hf
Meiraprófsbílstjóri óskast - Akureyri og nágrenni
Íslenska gámafélagið
SA Lyfjaskömmtun - framtíðarstarf
Lyf og heilsa
Sumarstarf - Bílstjórar með meirapróf á Selfossi
Borgarverk ehf
Starfsfólk með kranaréttindi
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf
Starfsmenn á þjónustuverkstæði
SINDRI
Aðstoðarstöðvarstjóri
Olíudreifing