

Leitum að öflugum liðsfélaga á Orkusvið
Leitum að öflugum liðsfélag á Orkusvið N1
N1 ætlar að vera leiðandi í orkuskiptum á Íslandi og hluti af þeirri vegferð er að koma að uppbyggingu hraðhleðslustöðvanets hringinn í kringum Ísland og bjóða upp á hleðslulausnir fyrir heimili og fyrirtæki.
Orkusvið N1 leitar að sérfræðingi á sviðið til að hafa umsjón með sölu og hönnun hleðslukerfa. Starfsstöðin er á skrifstofu N1 á Dalvegi.
Helstu verkefni eru:
-Umsjón með sölu og hönnun hleðslukerfa fyrir viðskiptavini
-Almenn ráðgjöf um vörur og þjónustu
-Þjónusta núverandi viðskiptavini innan hleðslulausna
-Koma að þróun hleðslulausna N1
-Taka þátt í uppbyggingu hraðhleðslustöðva N1 um allt land
Hæfnikröfur:
-Iðnmenntun innan rafvirkjunar
-Háskólamenntun að auki er kostur
-Góðir skipulagshæfileikar
-Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
-Metnaður
Fríðindi í starfi:
-Velferðarþjónusta N1
-Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni og ELKO
Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Sigursteinn Bergþórsson hjá [email protected]











