

Leikskólinn Tröllaborgir: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Vilt þú taka þátt í að byggja upp flott starf á góðum grunni og verða hluti af góðu teymi?
Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða leikskólakennara eða starfsmann með háskólamenntun sem nýtist í starfi í 80-100% ótímabundnar stöðu.
Sé starfshlutfall minna en 100% felur starfið í sér að einhverja daga í viku verði viðvera til klukkan 16:00, þó aðrir dagar verði styttri.
Æskileg starfsbyrjun er samkomulagi.
Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.
Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.
Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.is
Kennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, Aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Akureyrarbæjar.
Næsti yfirmaður er deildarstjóri.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum skólans.
- Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra. Situr kennarafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi skólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi, öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg.
- Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við skemmtilegt starf með börnum og fullorðnum.
- Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleika í starfi.
- Þekking á agastefnu skólans, Jákvæðum aga, er æskileg en þó ekki skilyrði.
- Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska


















