Akureyri
Akureyri
Akureyri

Skólaritari í Lundarskóla

Við Lundarskóla er laus til umsóknar 100% staða skólaritara. Vinnutími hefst klukkan 7:45 alla virka daga. Um er að ræða ótímabundna stöðu. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Leitað er að einstaklingi með metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Lundarskóli er staðsettur við Dalsbraut og er fjöldi nemenda um 480 og 95 starfsmenn. Í skólanum er unnið með SMT skólafærni og heilsueflandi skóla. Lundarskóli leggur áherslu á teymisvinnu og framþróun í skólastarfi.

Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing, vellíðan.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.lundarskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast símavörslu og aðra umsjón á skiptiborði.
  • Tekur við fjarvistartilkynningum, skráir fjarvistir og hringir heim til nemenda í samráði við kennara.
  • Hefur eftirlit með tækjum og gögnum á skrifstofu og vinnuherbergi starfsfólks.
  • Sér um pantanir og móttöku á ritföngum og tilfallandi námsgögnum fyrir nemendur og starfsfólk.
  • Annast innritun nemenda í skólann og heldur utan um nemendaskrá.
  • Hefur umsjón með matartorgi og hefur yfirlit yfir skráningar í fæði og aðrar áskriftir.
  • Hefur yfirsýn yfir leiguskráningar á skólahúsnæði og heldur utan um innheimtu vegna útleigu í samvinnu við húsvörð og skólastjóra.
  • Sinnir upplýsingaflæði til foreldra í samráði við stjórnendur, s.s. með fjölpósti og/eða með fréttum á heimasíðu í samvinnu við stjórnendur skólans.
  • Sér um forfallaskráningu starfsfólks og aðstoðar við mönnun varðandi afleysingar í samráði við skólastjórnendur.
  • Hefur umsjón með tölvupóstnetfangi skólans, svarar erindum og/eða kemur þeim í réttan farveg.
  • Sér um öll neyðarlyf fyrir nemendur sem geymd eru í skólanum í samvinnu við skólahjúkrunarfræðing.
  • Situr í öryggis- og áfallateymi skólans.
  • Starfsmaður annast önnur þau verkefni sem skólastjóri felur honum og falla undir starfssvið hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
  • Mjög gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
  • Mjög góð tölvukunnátta.
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum við börn og fullorðna.
  • Mjög góð þjónustulund.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Gott vald á ensku.
  • Starfsmaður þarf að vera jákvæður, traustur og samkvæmur sjálfum sér.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt21. maí 2026
Umsóknarfrestur5. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalsbraut/Lundarskóli 147482, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar