

Glerárskóli: Sérhæfður starfsmaður í grunnskóla
Laus er til umsóknar um 70% staða sérhæfðs starfsmanns í Glerárskóla. Óskað er eftir atferlisfræðingi, þroskaþjálfa eða starfsmanni með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Ráðning er frá 1. ágúst 2026 til 18. júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum og faglegum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Meginhlutverk starfsmanns er að sinna nemanda/nemendum á grunnskólaaldri með sértækar þarfir. Starfsmaður er í teymi stoðþjónustu skólans sem sinnir nemendum, í samvinnu við kennara, starfsfólk og stjórnendur, við að efla sjálfstæði og skólafærni þeirra. Tilgangur þess er að nemandi geti verið þátttakandi í skólastarfi og verkefni starfsmanns er að tryggja/stuðla að þeirri aðlögun sem þarf til að nemandi fái jákvæða upplifun af skólalífinu, njóti og læri.
- Aðlögun nemenda að skólastarfinu svo þeir fái notið sín sem best, þjálfun/umönnun nemenda.
- Gerð einstaklingsáætlana í samvinnu við umsjónarkennara, sérkennara, foreldra og aðra eftir því sem við á.
- Skipulagning þjálfunar- og námsumhverfis, að velja/útbúa þjálfunar- og námsgögn og fylgja eftir settum markmiðum.
- Mat á árangri og endurskoðun markmiða í samstarfi við annað fagfólk.
- Finna námsgögn fyrir nemanda/nemendur og aðlaga þau í samvinnu við stoðþjónustu og kennara.
- Sitja teymisfundi vegna nemanda/nemenda, skipuleggja og stýra eftir þörfum auk þess að sitja aðra fundi er viðkoma nemanda/nemendum.
- Vinna í nánu samstarfi með foreldrum/forráðamönnum nemanda/nemenda.
- Veita ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsfólks, innan og utan skólans varðandi sérþarfir nemanda/nemenda og miðla sérþekkingu sinni til annarra starfsmanna eftir þörfum.
- Vera tengiliður við aðra aðila sem að nemanda/nemendum koma s. s. umsjónarkennurum umsjónarbekks, stoðþjónustu og skólaþjónustu.
- Önnur þau verkefni sem falla innan starfssviðs og er ætlað að tryggja sem mesta farsæld nemanda/nemenda.
- Háskólapróf og starfsréttindi sem þroskaþjálf, atferlisfræðingur eða sem tengist þeirri háskólamenntun sem viðkomandi hefur.
- Áhugi á þjálfun, kennslu og velferð barna með sértækar þarfir er skilyrði.
- Reynsla af starfi með fötluðum börnum og/eða börnum með sértækar þarfir æskileg.
- Reynsla af starfi í grunnskóla er kostur.
- Aðlögunar- og samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Skipulagsfærni, stundvísi og reglusemi.
- Lausnamiðuð hugsun og færni til að sinna umbótum.
- Kunnátta í skyndihjálp er kostur.
- Gott líkamlegt atgervi.
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu
Íslenska










