LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Sérfræðingur í framlínu LSR

Langar þig að ganga til liðs við stærsta lífeyrissjóðs landsins og starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi? Við hjá LSR leitum að metnaðarfullum og jákvæðum sérfræðingi til að slást í hóp okkar á lífeyrissviði. Ef þú hefur ríka þjónustulund, góða greiningargetu og vilt taka þátt í umbótaverkefnum sem snerta framtíð sjóðfélaga okkar, þá erum við að leita að þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Persónuleg og fagleg þjónusta við sjóðfélaga og lífeyrisþega , bæði í síma, tölvupósti og í móttöku.
  • Ráðgjöf um lífeyrisréttindi og séreignarsparnað hjá LSR.
  • Öflun og skráning gagna sem tengjast lífeyrisréttindum.
  • Umsjón með umsóknum um lífeyri og breytingum á lífeyrisréttindum.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum lífeyrissviðs sem stuðla að betri þjónustu og rekstri.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og sterk þjónustulund.
  • Jákvætt hugarfar og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu.
  • Góð greiningargeta og talnagleggni ásamt sjálfstæðum vinnubrögðum.
  • Reynsla af störfum tengdum lífeyrismálum og/eða þjónustu er kostur.
  • Mjög góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
  • Gott vald á íslensku og ensku, jafnt í rituðu sem töluðu máli.
Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Engjateigur 11, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar