Leikskólinn Suðurborg
Leikskólinn Suðurborg
Leikskólinn Suðurborg

Leikskólinn Suðurborg - Sérkennslustjóri

Laus er til umsóknar staða sérkennslustjóra í leikskólanum Suðurborg. Um er að ræða ótímabundið starf en í leikskólanum eru tvær stöður sérkennslustjóra en sú staða sem hér er auglýst heldur utan um íhlutun einhverfra barna.

Suðurborg er sérhæfður leikskóli í atferlisíhlutun einhverfra barna og starfar þar teymi þroskaþjálfa og leikskólasérkennara sem að sérkennslustjórinn hefur yfirumsjón yfir.

Suðurborg er 6 deilda leikskóli þar sem að 106 börn dvelja að jafnaði. Í leikskólanum er lögð áhersla á stuðning við jákvæða hegðun, sterka félagsfærni og að efla mál og læsi.

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga og aðalnámskrá leikskóla.
  • Faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum og veitir ráðgjöf til annarra starfsmanna.
  • Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem þess þurfa.
  • Veita foreldrum/forráðamönnum barna, stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
  • Vera faglegur tengiliður við aðila utan leikskólans sem tengjast sérkennslu.
  • Þátttaka í stefnumörkun skólans ásamt stjórnunarteymi og öðru samstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólasérkennara menntun, þroskaþjálfa menntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sérkennslu æskileg.
  • Þekking á atferlisíhlutun kostur.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi, jákvæðni og metnaður í starfi.
  • Reynsla, áhugi og hæfni í starfi með börnum.
  • Færni til að tjá sig í ræðu o ng riti.
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
  • Sundkort
  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt27. febrúar 2025
Umsóknarfrestur14. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurhólar 19, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar