Garðabær
Garðabær
Garðabær

Leikskólinn Akrar óskar eftir starfsmanni í snemmtæka íhlutu

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir starfsmanni sem sinnir snemmtækri íhlutun í samvinnu við sérkennslustjóra og leikskólastjóra.

Akrar eru fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegn um leik í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans eru virkni og vellíðan þar sem við viljum að öllum börnum og fullorðnum líði vel og upplifi gleði og sigra á hverjum degi.

Viltu vera með í okkar liði?

Helstu verkefni og ábyrgð

·    Sinnir snemmtækri íhlutun inná deildum og styður við börn sem þess þurfa

  • Tekur þátt í að efla faglegt starf í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk
  • Sinnir málörvun og eflir félagsfærni barna
  • Kemur að innleiðingarferli snemmtækrar íhlutunar í leikskólanum
Menntunar- og hæfniskröfur

·     Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn) eða menntun á sviði sérkennslufræða, uppeldisfræði, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi

•    Á Ökrum er full vinnustytting sem er 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrar-,         páska- og jólafrí
•    Leikskólinn er lokaður í dymbilviku vegna vinnustyttingar starfsfólks
•    Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
•    Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
•    Starfsmannafsláttur er af leikskólagjöldum
•    Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
•    Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
•    Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019. 

Auglýsing birt17. apríl 2024
Umsóknarfrestur29. apríl 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar