
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - vaktavinnufólk
Garðabær auglýsir störf við íþróttamiðstöðina Urriðaholti. Þar eru sundlaug og íþróttasalur sem þjóna skólakennslu, æfinga- og keppnishópum í körfubolta, handbolta, fimleikum og fleiri íþróttum auk almennings sem stundar sundlaugina og hópatíma í heilsurækt.
Um er að ræða vaktavinnu sem skipulögð er í þremur vaktahópum. Unnin er þriðja hver helgi.
Leitað er að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum til starfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við skóla, íþróttafélög og leigutaka
- Mótun umgengni og eftirlit með iðkendum og gestum mannvirkisins
- Eftirlit með búnaði og hússtjórnarkerfum
- Eftirlit á sundlaugarsvæði
- Ræstingar og viðhald hreinlætis er samofið verkefnum á hverri vakt
- Afgreiðsla og önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg
- Góð þjónustulund.
- Sundlaugavarðarpróf (námskeið í boði í byrjun vinnu).
- Innsýn í þarfir íþróttagreina varðandi æfinga- og keppnisaðstöðu.
- Framúrskarandi samskiptahæfni.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Auglýsing birt29. október 2026
Umsóknarfrestur6. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vinastræti 1-3
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFrumkvæðiMannleg samskiptiStundvísiSund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Mandarínmælandi sölufulltrúi / Mandarin Speaking Sales Representative
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Afgreiðsla á Keflavíkurflugvelli
Icelandia

Karlkyns starfsmaður í sundlaug Eskifjarðar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar

Pizzan óskar eftir starfsfólki
Pizzan

Ertu hress og til í tuskið?
Serrano

Starfsfólk óskast til ræstinga
Hreint ehf

Part Time Sales Assistant
Sports Direct Lindum

Umsjón netverslunar og vörulagers
Wodbúð

Starfsfólk í herbergjaþrif / Housekeeping Staff
360 Hótel

Störf í ræstingum/ Cleaning jobs
Nói Síríus

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Starfsmaður á lager
RJR ehf