

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólanum Drafnarsteini.
Drafnarsteinn er sex deilda leikskóli á tveimur starfsstöðum vestast í Vesturbæ Reykjavíkur sem eru Drafnarborg á Drafnarstíg 4 og Dvergasteinn sem er við Seljaveg 12. Í leikskólanum er unnið eftir hugmyndafræðinni Ótrúleg eru ævintýrin og því mikil áhersla á málörvun og læsi almennt. Drafnarsteinn er einnig Grænfánaskóli með regnbogavottun.
Starfið er laust nú þegar, eða eftir samkomulagi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða sambærileg menntun og/eða reynsla sem nýtist
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Mjög góð íslenska skilyrði
----------------------
Fríðindi í starfi:
· Menningarkort – bókasafnskort
· Samgöngustyrkur
· Sundkort
· 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
· Heilsuræktarstyrkur
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Upplýsingar um starfið veita Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri og Egill Helgason aðstoðarleikskólastjóri 411-3630
Íslenska










