

Heilsuleikskólinn Holtakot - leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall.
Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".
Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.
Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af öllum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barna undir stjórn deildarstóra
- Vinna að faglegu starfi deildar
- Tekur þátt í foreldrasamvinnu
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
- Ánægja af því að starfa með börnum
- Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
- Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi fyrir starfsmenn Holtakots
- Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna vinnustyttingar starfsfólks
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánudaga-fimmtudaga og 7:30-16:00 á föstudögum
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla Garðabæjar:
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Íslenska










