

Kirkjuból - leiðbeinandi
Leikskólinn Kirkjuból óskar eftir leiðbeinanda í 100% stöðu á deild og er starfið laust frá 1. október 2026, eða eftir nánara samkomulagi.Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Í leikskólanum dvelja allt að 61 barn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Okkur er annt um rödd barnanna og vinnum markvisst með eftirfarandi þætti í daglegu starfi.
- John Dewey
- Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna
- Lýðræðislegt leikskólastarf
- Sjálfstæði og valdefling
- Vellíðan og gleði
Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Væntumþykja - Vinátta.
Í leikskólum Garðabæjar er möguleiki á að sækja um styrki í Þróunarsjóð leikskóla til að styðja við nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem hver og einn leikskóli hefur til umráða til að styðja enn frekar við leikskólastarfið.Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í stöðugri mótun.Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að bætast við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.
- Vinna með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Taka þátt í uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er nauðsynleg
- Reynsla að vinna með börnum sem þurfa stuðning í hóp
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Hreint sakavottorð
- Vinnuskylda í fullu starfi er 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafrís
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
- Opnunartími leikskólans er 7:30 - 16:30 mánudag til fimmtudag og 7:30- 16:00 á föstudögum
- Fimm skipulagsdagar á ári sem eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Íslenska










