Garðabær
Garðabær
Garðabær

Frístundaheimilið Álftamýri - starfsmaður

Álftanesskóli auglýsir eftir starfsmanni í frístundaheimilið Álftamýri

Álftanesskóli auglýsir eftir starfsmanni í frístund. Frístundastarf fer fram frá kl. 13:00 eftir að skóla lýkur og til kl. 16:30. Um eru að ræða hlutastörf sem hentar mjög vel sem aukavinna með námi.

Í Álftanesskóla er unnið af miklum metnaði og áhersla lögð á notalegt andrúmsloft, umhyggju og góðan árangur. Í skólanum eru persónuleg samskipti milli nemenda, starfsfólks og foreldra. Samvinna er mikil og góð á milli allra þeirra sem starfa í skólasamfélaginu. Í skólanum ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.alftanesskoli.is.

Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Álftanesskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í skipulagningu og framkvæmd á faglegu frístundastarfi
  • Stýra hópum í frístundastarfi og leiðbeina börnum í leik og starfi
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Reynsla af nemendum með sérþarfir æskileg
  • Ánægja af starfi með börnum
  • Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi

Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur26. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar