

Starfsmaður óskast í félagsstarf 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstakling til að sjá um félagsstarf fyrir 60 ára og eldri. Félagsstarfið er starfrækt frá september til maí ár hvert og sinna tveir starfsmenn því saman hverju sinni. Um er að ræða opið hús í félagsheimilinu Miðgarði sem haldið er tvisvar sinnum í mánuði auk skipulagðra ferða.
Helstu verkefni felast í utanumhaldi og framkvæmd félagsstarfsins. Starfsmaður sinnir jafnframt skipulagningu félagsstarfsins í samstarfi við forstöðumann íþrótta- og frístundamála.
Reynsla af vinnu með eldra fólki er æskileg og nauðsynlegt er að hafa bíl til umráða. Einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður íþrótta- og frístundamála, Helgi Óttarr Hafsteinsson, á netfangið helgih@hvalfjardarsveit.is
Laun og starfskjör samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.
Helstu verkefni felast í utanumhaldi og framkvæmd félagsstarfsins. Starfsmaður sinnir jafnframt skipulagningu félagsstarfsins í samstarfi við forstöðumann íþrótta- og frístundamála.
Íslenska










