Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg hefur verið starfræktur frá 2. nóvember 1999. Deildirnar eru 6 talsins og heita Álfaberg, Flikruberg, Móberg, Silfurberg, Stuðlaberg og Tröllaberg.
Stefna leikskólans er að veita hverju barni umhyggju, stuðning og öryggi í gegnum þroskandi og heilsueflandi umhverfi.
Markmiðin okkar eru:
Barnið er alltaf í brennidepli.
Skapa umhverfi sem eflir alhliða þroska barnsins.
Nám barnsins fer fram í gegnum leikinn.
Hafa málhvetjandi umhverfi, til að stuðla að eðlilegri færni í íslensku.
Leikskólinn sé heilsueflandi.
Á leikskólanum ríkir jákvæðni, umhyggja, virðing og framsækni.
Börnin öðlast festu og öryggi í leikskólanum.
Allt starf leikskólans sé í nánu samstarfi við foreldra.
Foreldrar séu okkar samstarfsaðilar í umönnun barnanna og við veitum þeim stuðning í foreldrahlutverkinu.
Leikskólakennarar óskast á Hulduberg
VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ LEIKSKÓLAKENNURUM Í LEIKSKÓLASTARF FULLT STARF
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Í Huldubergi eru 102 börn á aldrinum 1 árs til 3ja ára. Sérstakar áherslur í leikskólastarfinu eru: Tilfinningalegt öryggi, umhyggja, umönnun, hlýja, góðvild, festa, sveigjanlegt dagskipulag, streitulaust umhverfi og aldurshæfandi örvun.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fylgist vel með velferð barnanna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar, gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða aðra sambærilega menntun.
- Áhugi, menntun, reynsla og hæfni í starfi með ungum börnum.
- Sjálfstæði og metnaður í vinnubrögðum.
- Framúrskarandi samskiptafærni.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur30. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Lækjarhlíð 3, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel
Umsjónarkennari óskast vegna forfalla
Helgafellsskóli
Deildarstjóri janúar 2025
Leikskólinn Stakkaborg
Verkefnastjóri í íþróttum- Stakkaborg
Leikskólinn Stakkaborg
Leikskólakennari - leikskólaliði í Ösp
Leikskólinn Ösp
Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli
Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli
Laus staða í Marbakka
Leikskólinn Marbakki
Leikskólakennari - leikskólaliði - Klettaborg
Leikskólinn Klettaborg
Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Álfaborg
Leiðbeinandi með mjög góða íslenskukunnáttu óskast í Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg
Leikskólakennari/ leiðbeinandi óskast í Efstahjalla
Efstihjalli