Leikskólinn Goðheimar
Leikskólinn Goðheimar
Leikskólinn Goðheimar

Leikskólakennarar í Goðheimum

Leikskólinn Goðheimar auglýsir eftir leikskólakennurum frá og með 8. ágúst 2024 eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 2. maí

Leiðarljós leikskólans eru: Vinátta - Virðing - Sjálfbærni

Goðheimar taka þátt í Grænfánaverkefni Landverndar og er skóli á grænni grein. Leikskólinn er einnig þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi leikskóli sem er á vegum Embættis landlæknis. Áhersla er lögð á að skapa aðstæður og umhverfi þar sem fólki getur liðið vel og fengið tækifæri til að blómstra í leik og starfi.

Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna. 

·         Að fylgjast vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar. 

·         Að taka þátt í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og sinnir faglegum verkefnum sem deildarstjóri felur honum. 

·         Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra. 

·         Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra. 

·         Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans. 

·         Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.  

·         Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum. 

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Leyfisbréf leikskólakennara. 

·         Reynsla í leikskólastarfi æskileg.

·         Færni í mannlegum samskiptum.  

·         Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.  

·         Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.

·         Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  

·         Góð íslenskukunnátta æskileg. 

Auglýsing stofnuð19. apríl 2024
Umsóknarfrestur2. maí 2024
Staðsetning
Engjaland 21, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar