Leikskólinn Sjáland
Leikskólinn Sjáland
Leikskólinn Sjáland

Viltu hafa áhrif á dýrmæta einstaklinga? Komdu til okkar

Langar þig að hafa áhrif og skipta máli í lífi dýrmætustu íbúa Garðabæjar?

Við leitum að snillingi í fullt starf með það að sjónarmiði að um framtíðarstarf sé að ræða.

Leikskólinn Sjáland er sjálfstætt starfandi leikskóli sem vinnur eftir Fjölvísistefnunni. Hún byggir á virðingu fyrir margbreytileika fólks og fjölbreyttum námsaðferðum. Markmiðið er að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir og stuðla að jákvæðri og sterkri sjálfsmynd. Gildi okkar í starfi eru jákvæðni, nákvæmni, sjálfstæði og virðing.

Nú leitum við að góðum einstaklingum til að sinna uppeldi og menntun ungra barna en mikið svigrúm er fyrir sjálfstæði í hugmyndavinnu og verkefnavali. Leikskólinn leggur upp úr því að öll samskipti séu hlý og virðingarrík og að börnunum sé mætt af mikilli alúð og fagmennsku.

Skólinn er staðsettur við ylströndina í Sjálandshverfinu í Garðabæ í nýlegu og rúmgóðu húsnæði.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni okkar www.sjaland.is eða í síma 578-1220

Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldurstakmarki
Góð hæfni í íslensku er grunnskilyrði
Good Icelandic language skills required

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppeldi og menntun nemenda í samræmi við verklag og námsskrá skólans
  • Samskipti og samvinna við foreldra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og kennsluréttindi
  • Reynsla af kennslu og vinnu með börnum 
  • Áreiðanleiki, nákvæm vinnubrögð og vinnusemi
  • Virðing fyrir nemendum
  • Jákvætt viðhorf og framfaramiðað hugarfar
  • Vönduð og fagleg framkoma
  • Hæfni til að vinna að jákvæðum skólabrag
  • Hæfni til að afla sér og miðla þekkingu og upplýsingum á íslensku
Fríðindi í starfi
  • Virk skemmtinefnd og reglulegir viðburðir
  • Dagleg útivera
  • Stytting vinnuvikunnar eru 2 frídagar í mánuði (öðrum er safnað upp fyrir t.d. frí í dymbilviku og aðra daga þegar nemendur eru í fríi)
  • Fríar máltíðir
  • Mætingarbónus
  • Hærri laun en í ríkis- og bæjarreknum leikskólum
  • Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum fyrir starfsmenn Garðabæjar
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur8. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Vesturbrú 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar