Leiðtogi í gagna- og upplýsingastjórnun
Akraneskaupstaður leitar að öflugum og drífandi skjalastjóra til að veita faglega forystu í gagna- og upplýsingastjórnun sveitarfélagsins og stafrænni umbreytingu því tengt. Um er að ræða nýtt og spennandi starf hjá Akraneskaupstað sem viðkomandi hefur tækifæri til að móta.
Áhersla Akraneskaupstaðar er að veita aukna stafræna þjónustu ásamt því að umbylta starfsháttum innan sveitarfélagsins m.a. með því að byggja upp aukna þekkingu og notkun nútímanlegra upplýsingatæknikerfa. Skjalastjóri yrði mikilvægur hluti af þessari vegferð með því að bera meginábyrgð á þróun og umbótum á sviði skjalavörslu, gegna lykilhlutverki í ráðgjöf og fræðslu til starfsfólks varðandi vinnulag með gögn og upplýsingar sveitarfélagsins, ásamt því að vera í faglegri forystu varðandi innleiðingu lausna og skipulags tengdu skjala- og gæðamálum.
Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með tæplega 8.000 íbúa. Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð. Sveitarfélagið er meðal stærstu vinnuveitenda á Akranesi, en hjá bænum starfa um 750 manns.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun kostur
Þekking og reynsla af skjalastjórnun og notkun rafrænna skjalavistunarkerfa skilyrði
Góð alhliða þekking eða reynsla á sviði tölvu- og upplýsingatækni er kostur
Reynsla af innleiðingu og þróun nýrra lausn á sviði skjala- og gæðamála er kostur
Þekking eða reynsla af gæðamálum er kostur
Þekking eða reynsla á opinberri stjórnsýslu er kostur
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni
Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun, skipulag og umsjón með skjalamálum
Stuðla að bættri hagnýtingu gagna og upplýsingatækni í rekstri sveitarfélagsins
Gerð skjalastefnu ásamt ábyrgð og umsjón með innleiðingu og þróun hennar
Endurskoðun og mótun verklags við skjalastjórnun með áherslu á stafræna umbreytingu
Þátttaka í innleiðingu lausna á sviði skjala- og gæðamála
Umsjón með móttöku erinda og skjala, ásamt frágangi skjalasafns og eftirfylgni með skjalaskráningu.
Skipulagning og framkvæmd fræðslu í skjala- og gæðamálum, auk þess að veita ráðgjöf og stuðning við starfsmenn í þeim málum