
Smári sparisjóður
Smári sparisjóður er þjónustufyrirtæki á fjármálasviði sem veitir alla almenna banka- og fjármálaþjónustu. Árið 2025 sameinuðust Sparisjóður Höfðhverfinga og Sparisjóður Strandamanna undir nafninu Smári sparisjóður. Sameiningin styrkti starfsemina og er sameinaður sparisjóður betur í stakk búinn til að veita viðskiptavinum öfluga, persónulega og örugga þjónustu til framtíðar. Sameinaður sparisjóður getur staðið enn sterkar að baki nærumhverfinu og haldið áfram að styðja við uppbyggileg samfélagsleg verkefni á sínu starfssvæði. Smári sparisjóður hefur starfsstöðvar á Akureyri, Grenivík og Hólmavík.
Lánamál og þjónusta
Smári sparisjóður óskar eftir að ráða drífandi einstakling í fjölbreytt starf þjónustufulltrúa eða sérfræðings með áherslu á lánamál.
Starfið býður upp á margþætta möguleika á aðkomu að ferlum, ábyrgð og ákvarðanatöku í ýmsum verkefnum hjá öflugu fjármálafyrirtæki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við viðskiptavini vegna lántöku og annarrar þjónustu sem sparisjóðurinn veitir
- Mat á lánsbeiðnum einstaklinga og fyrirtækja
- Skráning og frágangur skjala í tengslum við útlán og veitta þjónustu
- Áætlanagerð og eftirfylgni þjónustuþátta
- Aðstoða annað starfsfólk sparisjóðsins og leysa af eftir þörfum
- Önnur verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í viðskiptafræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegum verkefnum kostur
- Nákvæmni og öguð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót, vilji og áhugi á að takast á við ný verkefni
- Framúrskarandi samskiptahæfni og leiðtogahæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Glerárgata 36, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Rekstrarstjóri / Bókhald
Hringiðan Internetþjónusta

Tæknilegur bókari
Sessor

Deildarstjóri þjónustudeildar á Norðursvæði
Vegagerðin

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Business Central vöruhúsaráðgjafi
Advania

Vilt þú taka þátt í að þróa leiðarkerfi Keflavíkurflugvallar?
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Deildarstjóri - Sóltún Heima
Sóltún Heima

Ráðgjafi hjá Expectus Finance
Expectus Finance

Sérfræðingur í þjónustu og upplifun
APRÓ

Sumarstarf í birgðastýringu
Krónan

KPMG leitar að nýliðum á endurskoðunarsviði
KPMG á Íslandi