

Ráðgjafi hjá Expectus Finance
Viltu hjálpa fyrirtækjum að nýta tækni til að gera fjármál og ferla snjallari?
Hjá Expectus Finance vinnum við með fyrirtækjum að því að einfalda fjármála- og rekstrarferla, nýta fjárhagsgögn betur og innleiða tæknilausnir sem gera reksturinn skilvirkari.
Verkefnin okkar eru fjölbreytt, allt frá vinnslu og umbótum á bókhaldi og fjármálastjórnun yfir í sjálfvirknivæðingu ferla, innleiðingu nýrra kerfa og stærri umbreytingarverkefni innan fjármálasviða.
Expectus Finance er í miklum vexti og við erum að leita að öflugum ráðgjafa sem vill taka þátt í að móta hvernig fyrirtæki vinna með fjármál, ferla og tækni.
Við leitum að einstaklingi sem hefur bakgrunn í viðskiptafræði, verkfræði, hagfræði eða tengdum greinum, en umfram allt hefur brennandi áhuga á tækni, ferlum og því að finna betri leiðir til að leysa verkefni.
- Fjölbreytt verkefni innan fjármáladeilda hjá fjölbreyttum viðskiptavinum
- Einfalda og bæta fjármála- og rekstrarferla innan fyrirtækja
- Nýta tækni, sjálfvirknivæðingu og gervigreind til að gera vinnu skilvirkari
- Umbótaverkefni hjá fyrirtækjum
- Byggja upp nýjar lausnir og góð vinnubrögð
- Bókhald og/eða launavinnsla fyrir viðskiptavini
- Grunnnám í viðskiptafræði, verkfræði, hagfræði eða öðru námi sem nýtist
- Áhugi á ferlum fjármáladeilda og á því hvernig tölurnar verða til
- Tæknilæsi og vilji til að nýta tækni til að gera ferla og verkefni skilvirkari
- Áhugi á reikningshaldi og vilji til að læra
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Kostur að hafa unnið í fjármáladeild eða með reynslu af fjárhagskerfum
- Ekkert eðlilega skemmtilegur vinnustaður þar sem vellíðan og vöxtur starfsfólks eru í forgrunni
- Frábærir vinnufélagar og góður starfsandi
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á hvernig fyrirtæki þróast og vinna
- Mikil áhersla á að efla hæfni starfsfólks og styðja fólk í að vaxa í starfi
- Fjölbreytt og skemmtilegt félagslíf í gegnum starfsmannafélagið
- Sveigjanlegt starfsumhverfi sem styður gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs
Nánari upplýsingar veitir Heiðdís Rún Guðmundsdóttir, [email protected].
Íslenska
Enska










