Lagerstjóri Lostætis - Veitingaþjónustu Alcoa Fjarðaáls
Við hjá Lostæti leitum að útsjónarsömum og skipulögðum aðila til að stýra birgðalager okkar og vöruafhendingu í starfsstöð okkar hjá Alcoa Fjarðaáli í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni eru innkaup, vörumóttaka, samþykkt reikninga, tiltekt og afgreiðslur pantana, umhirða lagersvæða og bifreiða, vörudreifing í nágrenninu og önnur tilfallandi störf sem unnin eru á vörulager.
Bílpróf, tölvukunnátta, sjálfstæð vinnubrögð, snyrtimennska og hreinlæti skilyrði.
Lostæti Austurlyst er stærsta veitingaþjónusta á Austurlandi, með aðsetur á Reyðarfirði. Framleiðslueldhús okkar er staðsett að Hrauni 1, hjá Alcoa Fjarðaáli, en Lostæti sinnir meðal annars veitingaþjónustu fyrir starfsfólk og verktaka Alcoa Fjarðaáls.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst
Nánari upplýsingar um starfið gefur Ásgeir Ásgeirsson Rekstrarstjóri í tölvupósti: asgeir@lostaeti.is eða í síma 455 3700
- Innkaup þurrvöru, ferskvöru, frystivöru ofl
- Vörumóttaka á vörulager, gæðaeftirlit og frágangur
- Samþykkt reikninga
- Tiltekt og afgreiðsla pantana
- Umhirða lagersvæða og bifreiða
- Vörudreifing í nágrenninu
- Önnur tilfallandi lagerstörf
- Rík þjónustulund
- Stundvísi, ábyrgð, áhugi og útsjónarsemi
- Snyrtimennska og hreinlæti
- Fríar máltíðir á vinnutíma