
Lækning - Starf í móttöku og símsvörun
Hefur þú gaman af mannlegum samskiptum? Ef svo er þá leitum við að starfsmanni í hlutastarf í okkar frábæra starfsmannahóp.
Starfið felst í símsvörun og almennum móttökuritarastörfum ásamt ýmsum tilfallandi verkefnum.
Hæfniskröfur:
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Jákvætt viðmót
- Geta til að vinna undir álagi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Um framtíðarstarf er að ræða og vinnutími er breytilegur á milli kl. 8 og 16 virka daga. Viðkomandi þarf að geta unnið allan daginn í sumar vegna afleysinga í orlofi.
Í boði er líflegur vinnustaður með góðum starfsanda og gott vinnumhverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Eyjólfsdóttir, skrifstofustjóri, í síma 590-9200 og á [email protected].
Hjá Lækningu er að finna sérfræðinga í hinum ýmsu sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Í Lækningu eru nútímalegar og vel útbúnar móttökustofur sérfræðilækna og fullkomnar skurðstofur.











