

Kópahvoll óskar eftir sérkennara/stuðning
Leikskólinn Kópahvoll óskar eftir sérkennara/stuðningi.
Kópahvoll er fjögurra deilda skóli með 74 börnum. Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá leikskóla með áherslu á leikinn. Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starfsmanna sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga. Stuðst er við hugmyndafræðina „Uppeldi til ábyrgðar“ í öllu okkar starfi og erum við einnig í ferli við að verða réttindaskóli UNICEF.
Leikskólinn er staðsettur á fallegum stað við Víghólinn í Kópavogi sem er friðað leik- og útivistarsvæði. Kópahvoll vinnur með vináttuverkefni Barnaheilla, Lubbi finnur málbeinið og með snemmtæka íhlutun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfi eða önnur uppeldismenntun.
- Ábyrgð í starfi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Reynsla af skipulagningu sérkennslu og þjálfunar.
Ef ekki fæst leikskólakennari eða þroskaþjálfi verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfið felur í sér stuðning við börn með þroskafrávik.
- Öflug teymisvinna þar sem hagsmunir barnsins ráða för.
- Áhersla lögð á fagleg vinnubrögð.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
- Starfshlutfall er 100%
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar um leikskólann Kópahvol eru á: http://kopahvoll.kopavogur.is
Upplýsingar um starfið veita Halla Ösp Hallsdóttir, leikskólastjóri og Stefanía Finnbogadóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 4416500.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.











