Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Tjarnarskógur

Leikskólinn Tjarnarskógur Egilsstöðum auglýsir til umsóknar 100% starf sérkennslustjóra. Ráðið er í stöðuna frá janúar 2027.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í að stjórna og leiða gott faglegt starf í lýðræðislegu skólaumhverfi. Jákvæðni og lipurð í samskiptum eru nauðsynlegir eiginleikar. Í Tjarnarskógi leggjum við áherslu á samvinnu, nýtingu mannauðs og skapandi lausnaleit.

Næsti yfirmaður er leikskólastjóri Tjarnarskógar.

Leikskólinn Tjarnarskógur er níu deilda leikskóli með 160 nemendur á tveimur starfsstöðvum, Skógarlandi og Tjarnarlandi. Leikskólinn Tjarnarskógur vinnur eftir Uppeldi til ábyrgðar og horfir til fjölgreindarkenningar Howards Gardners í starfsaðferðum sínum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um skipulagningu, framkvæmd og endurmat sérkennslu í leikskólanum
  • Heldur utan um skimanir sem gerðar eru á leikskólanum
  • Ráðgjöf og miðlun upplýsinga til foreldra og starfsfólks leikskóla
  • Umsjón námsgagna
  • Umsjón með gerð einstaklingsnámskráa
  • Þátttaka í stjórnendateymi leikskólans
  • Samskipti við skólaþjónustu
  • Tengiliður farsældar
  • Sinnir þeim verkefnum leikskólans sem yfirmaður felur honum hverju sinni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sérkennaramenntun (leyfisbréf fylgi umsókn).  Einnig er litið til menntunar á öðrum sviðum sem nýtast í starfi
  • Reynsla af sérkennslu eða af starfi með börnum
  • Sterk fagleg sýn, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt13. nóvember 2026
Umsóknarfrestur27. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skógarlönd 5, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar