
Leikskólakennari óskast til starfa í Teigaseli á Akranesi
Leikskólinn Teigasel á Akranesi óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum leikskólakennara til starfa. Um er að ræða 100% störf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Í Teigaseli starfar öflugur og metnaðarfullur hópur starfsfólks þar sem lögð er áhersla á góðan starfsanda, faglegt starf og vellíðan barna. Í leikskólanum er meðal annars unnið með stærðfræði, snemmtæka íhlutun í málörvun, flæði og opinn efnivið. Jafnframt er unnið að því að efla útikennslu í daglegu starfi.
Einkunnarorð leikskólans eru GLEÐI – EINING – VIRÐING.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast uppeldi, menntun og umönnun leikskólabarna í samræmi við starfslýsingu leikskólakennara.
- Taka þátt í skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi leikskólans.
- Taka þátt í samstarfi við foreldra og starfsfólk undir stjórn deildarstjóra.
- Taka virkan þátt í þróunarstarfi og öðrum verkefnum í samræmi við stefnu og áherslur leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg.
- Góð samskiptafærni, jákvætt viðmót og hæfni til samstarfs.
- Frumkvæði, faglegur metnaður og áhugi á þróun leikskólastarfs.
- Sjálfstæði, skipulagshæfni og sveigjanleiki í starfi.
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða einstakling með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinanda.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um störfin veita:
Íris Guðrún Sigurðardóttir, leikskólastjóri
Heiða Björk Guðjónsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Akraneskaupstaður hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið
Íslenska










