

Leikskólakennari við leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði
Kæribær er rúmlega 40 nemenda leikskóli þar sem starfrækar eru 2 deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu starfsfólki.
Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða reynslumikinn starfsmann samkvæmt lögum nr. 95/2019.
Ráðið er í stöðuna frá 5. janúar 2027. Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2026.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Hildur Ósk Pétursdóttir, leikskólastjóri í síma 475-9055 eða [email protected] og Guðný Elísdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 475-9055 eða [email protected]
• Uppeldi og menntun leikskólabarna
• Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs
• Foreldrasamstarf í samráði við stjórnendur
• Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
• Starfsleyfi sem kennari
• Reynsla af starfi með börnum kostur
• Góð samskiptahæfni og frumkvæði
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta
Íslenska










