

Kjörbúðin Seyðisfirði verslunarstarf
Kjörbúðin á Seyðisfirði leitar að duglegum og hjálpsömum einstaklingi. Upphafsvinna verður um 50%, með viðbótarvinnu í boði við afleysingar. Vaktir verða blanda af kvöld- og dagvinnu, þannig að sveigjanleiki er mikilvægur. Lausar vaktir aukast á sumrin þegar skemmtiferðaskipin mæta á staðinn. Einnig er möguleiki á stöðuhækkun í vaktastjóra fyrir rétta einstaklinginn.
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.
Frekari upplýsingar veitir Harry Caunter verslunarstjóri [email protected]
- Almenn verslunarstörf
- Vöruframsetning og áfylling
- Afgreiða og þjónusta viðskiptavini
- Þrif og frágangur
- Jákvætt viðmót og þjónustulund
- Skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og áræðni
- Sjálfstæði
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur en ekki skilyrði
- Heilsustyrkur til starfsmanna í boði
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa
- Velferðaþjónusta til starfsmanna í boði
- Tækifæri til þróunar í starfi











