Kerhólsskóli óskar eftir að ráða kennara í leikskóladeild
Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með u.þ.b. 80 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk þar af eru 25 börn í leikskóladeild sem er ört stækkandi. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt, útikennslu og heilsueflingu. Leikskóladeildin vinnur auk þess út frá kenningum um „Flæði“. Kerhólsskóli er í u.þ.b. 15. mín akstursfjarlægð frá Selfossi.
Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu.
Kennari í 100% starf. Kennarar í leikskóladeild starfa eftir starfslýsingu leikskólakennara. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.febrúar eða strax eftir áramót.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leyfisbréf til kennslu
· Góð færni í samskiptum
· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði. Miðað er við stig B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
Vilji til að gera góðan skóla betri
Fríðindi í starfi
· Stytting vinnuvikunar
· Skráningardagar í jóla-,páska- og vetrarfríum
· Frítt fæði á vinnutíma