Golfklúbburinn Oddur
Golfklúbburinn Oddur
Golfklúbburinn Oddur

Íþróttastjóri Golfklúbbsins Odds

Golfklúbburinn Oddur óskar eftir metnaðarfullum og framsýnum íþróttastjóra til að leiða íþróttastarf klúbbsins með sérstaka áherslu á að efla barna- og unglingastarf og tryggja faglega og markvissa uppbyggingu golfíþróttarinnar innan Golfklúbbsins Odds. Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn, sterka skipulagshæfileika og brennandi áhuga á að þróa golfið áfram á öllum getustigum.

Helstu verkefni

  • Mótun og framkvæmd heildarstefnu íþróttastarfs Golfklúbbsins Odds, í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórn.
  • Umsjón með barna- og unglingastarfi, þjálfunaráætlunum og stuðningi við keppnisfólk.
  • Skipulagning og samhæfing æfinga, námskeiða og fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
  • Leiðsögn og faglegur stuðningur við þjálfara.
  • Samstarf við Golfsamband Íslands, bæjarfélag, aðra klúbba og lykilaðila í íþróttastarfi.
  • Ábyrgð á árlegri starfsáætlun og reglulegri upplýsingagjöf til stjórnenda.

Hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af íþróttastjórnun, þjálfun eða verkefnastjórnun innan íþróttahreyfingar er kostur.
  • Sterk leiðtogahæfni, skipulagshæfileikar og hæfni til að vinna markvisst og sjálfstætt.
  • Frábær samskiptahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópum.
  • Framsækinn hugsunarháttur og hæfni til að byggja upp faglegt og jákvætt starfsumhverfi.

Við bjóðum

  • Áhrifaríkt og fjölbreytt starf í öflugu íþróttafélagi.
  • Tækifæri til að móta framtíð golfíþróttarinnar innan Golfklúbbsins Odds.
  • Samstarf við fagfólk og sterkt samfélag félagsmanna.
  • Góð starfskjör í samræmi við reynslu og hæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirumsjón með barna- og unglingastarfi

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.

Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urriðavatn 117902, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Golf
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar