

Íþróttafræðingur óskast til starfa
Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing óskar eftir að ráða íþróttafræðing til starfa. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingi til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
- Setja saman og útskýra æfingaáætlanir
- Sýna og útskýra hvernig æfingatæki virka
- Almennar heilsufarsmælingar
- Ráðgjöf um mataræði og almennt heilbrigði
- Menntun sem íþróttafræðingur
- Áhugi á að hafa áhrif á hreyfingu aldraðra skjólstæðinga Heilsuverndar
- Almennur áhugi á íþróttum og hæfni til að beita vísindalegum aðferðum í starfi
- Þekking á áhrifum hreyfingar, þjálfunar og mataræðis á heilsufar fólks
- Hæfileiki til að vinna skipulega og tekið þátt í teymisvinnu
- Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Íslenska
Enska





